COVID-19 Leiðbeiningar fyrir snyrtistofur, hárgreiðslustofur, nuddstofur, augnmælingar og sambærilega starfsemi 7. september 2020. Reglur þessar gilda til 25 sept.

by FÍSF

Nauðsynlegt er að viðhalda sóttvarna­ráðstöfunum og fylgja almennum leiðbeiningum heilbrigðisyfirvalda. Sérhver stofa/starfs­maður er ábyrgur fyrir sóttvörnum á sínum stað og þarf að fylgja eigin reglum miðað við starf­semi og aðstæður í hverju bæjarfélagi á hverjum tíma.Starfsmenn mega ekki koma í vinnu og viðskiptavinir mega ekki koma inn á stofu ef þeir:a. Eru í sóttkví.b. Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu sýnatöku).c. Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.d. Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang o.fl.).Almennar reglura. Virðið reglu um 1 metra nándarmörk á milli viðskiptavina.b. Starfsmenn og viðskiptavinir skulu setja upp hlífðargrímu þegar ekki er hægt að virða 1 metra nándarmörk. Snyrtistofum er þó leyfilegt að bjóða upp á andlitsmeðferð þar sem viðskiptavinur er grímulaus, enda sé hann einkennalaus. Sá sem veitir meðferðina skal þó vera með grímu allan tímann. Ekki er skylda að veita þessa þjónustu.c. Haldið góðri loftræstingu, opnið glugga.d. Hafið handspritt staðsett við inngang fyrir viðskiptavini.e. Komið fyrir fjarlægðarmerkingum þar sem það á við.f. Setjið upp aðstöðu til að sótthreinsa snertifleti og sótthreinsið snertifleti eins oft og unnt er en a.m.k. á milli viðskiptavina. Starfsmenn þvo og spritta hendur á milli hvers viðskipta­vinar.g. Tryggið aðgang að handþvottaaðstöðu og handspritti fyrir starfsmenn.h. Tryggið starfsmönnum aðgang að hlífðarbúnaði til að nota ef grunur vaknar um smit.i. Sameiginlega snertifleti ætti að lágmarka, s.s. tímarit og kaffiaðstaða fyrir gesti.j. Gangið frá sorpi í lokuðum pokum og setjið í sorpgeymslu.k. Strjúkið af öllum búnaði (borð, stólar, verkfæri) á milli gesta með Virkon og spritti eins oft og unnt er en a.m.k. milli viðskiptavina.Þjónusta við viðkæma hópa s.s. hárgreiðsla og hársnyrting/fótaaðgerð og fótsnyrting innan hjúkrunarheimila.Er háð reglum hvers hjúkrunarheimilis á hverjum tíma.Frekari upplýsingar um þrif, sóttvarnir og viðbrögð við grun um smit er að finna í Leiðbeiningum til framlínustarfsmanna í atvinnulífinu.

You may also like