Siðareglur Félags íslenskra snyrtifræðinga.
Siðareglur eiga að efla fagmennsku snyrtifræðinga og styrkja fagvitund þeirra.
- Snyrtifræðingi ber að sýna öðrum snyrtifræðingum virðingu í framkomu, ræðu og riti.
- Snyrtifræðingum ber að sýna hver öðrum tillitsemi og umburðarlyndi.
- Snyrtifræðingur á að viðhafa þagnarskyldu, gagnvart viðskiptavinum.
- Snyrtifræðingur skal virða þá ábyrgð og þau takmörk sem starfi og menntun fylgir.
- Snyrtifræðingi ber að viðhalda starfshæfni sinni og fylgjast með nýjungum.
- Snyrtifræðingur skal hafa hugfast að orðspor stéttarinnar byggir á sérhverjum einstaklingi innan hennar.
- Snyrtifræðingur skal virða lög FÍSF og siðareglur FÍSF og fara eftir þeim í hvívetna.