Ný ríkisstjórn styrki meistarakerfi löggiltra iðngreina

by Rebekka Einarsdóttir
A+A-
Reset

“Formenn 24 fag- og meistarafélaga innan Samtaka iðnaðarins skrifa undir grein sem birt er á Vísi undir yfirskriftinni Ný ríkisstjórn styrki meistarakerfi löggiltra iðngreina. Í greininni segir að meistararéttindi liggi til grundvallar iðnrekstrar í okkar samfélagi og séu slík réttindi staðfesting þess efnis að einstaklingur hafi lokið tilskildu bók- og verknámi og uppfylli kröfur um færni. Meistarakerfinu sé ætlað að skapa hvata fyrir einstaklinga til að sækja sér iðnmenntun en ekki síður að skapa vissu og öryggi fyrir neytendur um að þau sem veiti þjónustu á sviði löggiltra iðngreina hafi tilskilda færni og sérhæfða þekkingu. Það er því ekki að ástæðulausu að iðngreinar séu löggiltar enda bera meistarar í iðngreinum ábyrgð á verkum sínum og þjónustu.”

Smelltu hér til að lesa meira

You may also like