Leiðbeiningar fyrir snyrtistofur og hárgreiðslustofur og
sambærilega starfsemi vegna COVID-19
Snyrtistofur, hágreiðslustofur og önnur sambærileg starfsemi sem krefst snertingar eða
hætta er á snertingu mill fólks eða mikillar nálægðar er óheimil í sveitarfélögunum
Reykjavíkurborg, Seltjarnarnesbæ, Mosfellsbæ, Kjósarhreppi, Hafnafjarðarkaupstað,
Garðabæ og Kópavogsbæ.
Í öðrum sveitarfélögum er heimilt að starfrækja umrædda starfsemi og er þá nauðsynlegt að
viðhalda sóttvarnaráðstöfunum og fylgja almennum leiðbeiningum heilbrigðisyfirvalda.
Sérhver stofa/starfsmaður er ábyrgur fyrir sóttvörnum á sínum stað og þarf að fylgja eigin
reglum miðað við starfsemi og aðstæður í hverju bæjarfélagi á hverjum tíma.
Starfsmenn mega ekki koma í vinnu og viðskiptavinir mega ekki koma inn á stofu ef þeir:
a. Eru í sóttkví.
b. Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu sýnatöku).
c. Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
d. Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang
o.fl.).
Almennar reglur
a. Virðið reglu um 2ja metra nándarmörk á milli viðskiptavina.
b. Starfsmenn og viðskiptavinir skulu setja upp hlífðargrímu þegar ekki er hægt að virða 2ja
metra nándarmörk. Snyrtistofum er þó leyfilegt að bjóða uppá andlitsmeðferð þar sem
viðskiptavinur er grímulaus, enda sé hann einkennalaus. Sá sem veitir meðferðina skal þó
vera með grímu allan tímann. Ekki er skylda að veita þessa þjónustu.
c. Haldið góðri loftræstingu, opnið glugga.
d. Hafið handspritt staðsett við inngang fyrir viðskiptavini.
e. Komið fyrir fjarlægðarmerkingum þar sem það á við.
f. Setjið upp aðstöðu til að sótthreinsa snertifleti og sótthreinsið snertifleti eins oft og unnt
er en a.m.k. á milli viðskiptavina. Starfsmenn þvo og spritta hendur á milli hvers viðskiptavinar.
g. Tryggið aðgang að handþvottaaðstöðu og handspritti fyrir starfsmenn.
h. Tryggið starfsmönnum aðgang að hlífðarbúnaði til að nota ef grunur vaknar um smit.
i. Sameiginlega snertifleti ætti að lágmarka, s.s. tímarit og kaffiaðstaða fyrir gesti.
j. Gangið frá sorpi í lokuðum pokum og setjið í sorpgeymslu.
k. Strjúkið af öllum búnaði (borð, stólar, verkfæri) á milli gesta með Virkon og spritti eins
oft og unnt er en a.m.k. á milli viðskiptavina.
- október 2020
Þjónusta við viðkæma hópa s.s. hárgreiðsla og hársnyrting/fótaaðgerð og fótsnyrting innan
hjúkrunarheimila.
Er háð reglum hvers hjúkrunarheimilis á hverjum tíma.
Frekari upplýsingar um þrif, sóttvarnir og viðbrögð við grun um smit er að finna í
Leiðbeiningum til framlínustarfsmanna í atvinnulífinu.