Leiðbeiningar fyrir snyrtistofur, hársnyrtistofur og
sambærilega starfsemi vegna COVID-19
NEYÐARSTIG birt 16 nóvember

by FÍSF

Heimilt er að starfrækja snyrtistofur, hársnyrtistofur og aðra sambærilega starfsemi sem krefst
snertingar eða hætta er á snertingu milli fólks eða mikillar nálægðar. Tryggja skal að a.m.k.
tveir metrar séu á milli viðskiptavina og að hámarki séu 10 viðskiptavinir inni í sama rými.
Nauðsynlegt er að notast við andlitsgrímur, þar sem ekki er hægt að tryggja 2ja metra
nálægðartakmörkun og skal andlitsgríma hylja munn og nef. Sjá leiðbeiningar um notkun á
andlitsgrímum. Hár- og snyrtistofum er þó leyfilegt að bjóða uppá andlitsmeðferð og
skeggsnyrtingu þar sem viðskiptavinur er grímulaus, enda sé hann einkennalaus. Sá sem veitir
meðferðina skal þó vera með grímu sem hylur nef og munn allan tímann. Ekki er skylda að
veita þessa þjónustu.
Sjá nánari leiðbeiningar viðhalda sóttvarnaráðstöfunum og fylgja almennum leiðbeiningum
heilbrigðisyfirvalda. Sérhver stofa/starfsmaður er ábyrgur fyrir sóttvörnum á sínum stað og
þarf að fylgja eigin reglum miðað við starfsemi og aðstæður í hverju bæjarfélagi á hverjum
tíma.
Starfsmenn mega ekki koma í vinnu og viðskiptavinir mega ekki koma inn á stofu ef þeir:
a. Eru í sóttkví.
b. Eru í einangrun (einnig meðan beðið er niðurstöðu sýnatöku).
c. Hafa verið í einangrun vegna COVID-19 smits og ekki eru liðnir 14 dagar frá útskrift.
d. Eru með einkenni (kvef, hósta, hita, höfuðverk, beinverki, þreytu, kviðverki, niðurgang
o.fl.).

Almennar reglur
a. Virðið reglu um 2ja metra nándarmörk á milli viðskiptavina.
b. Starfsmenn og viðskiptavinir skulu setja upp hlífðargrímu, sem hylur bæði nef og munn,
þegar ekki er hægt að virða 2ja metra nándarmörk. Hár- og snyrtistofum er þó leyfilegt
að bjóða uppá andlitsmeðferð og skeggsnyrtingu þar sem viðskiptavinur er grímulaus,
enda sé hann einkennalaus. Sá sem veitir meðferðina skal þó vera með grímu sem hylur
nef og munn allan tímann. Ekki er skylda að veita þessa þjónustu.
c. Haldið góðri loftræstingu, opnið glugga.
d. Hafið handspritt staðsett við inngang fyrir viðskiptavini.
e. Komið fyrir fjarlægðarmerkingum þar sem það á við.
f. Setjið upp aðstöðu til að sótthreinsa snertifleti og sótthreinsið snertifleti eins oft og unnt
er en a.m.k. á milli viðskiptavina. Starfsmenn þvo og spritta hendur á milli hvers viðskiptavinar.
g. Tryggið aðgang að handþvottaaðstöðu og handspritti fyrir starfsmenn.

h. Tryggið starfsmönnum aðgang að hlífðarbúnaði til að nota ef grunur vaknar um smit.
i. Sameiginlega snertifleti ætti að lágmarka, s.s. tímarit og kaffiaðstaða fyrir gesti.
j. Gangið frá sorpi í lokuðum pokum og setjið í sorpgeymslu.
k. Strjúkið af öllum búnaði (borð, stólar, verkfæri) á milli gesta með Virkon og spritti eins
oft og unnt er en a.m.k. á milli viðskiptavina.
Þjónusta við viðkæma hópa s.s. hárgreiðsla og hársnyrting/fótaaðgerð og fótsnyrting innan
hjúkrunarheimila.
Er háð reglum hvers hjúkrunarheimilis á hverjum tíma.
Frekari upplýsingar um þrif, sóttvarnir og viðbrögð við grun um smit er að finna í
Leiðbeiningum til framlínustarfsmanna í atvinnulífinu – Atvinnulíf og vinnustaðir. Covid-19 –
Forvarnir, þrif og viðbrögð við smiti á vinnustað

You may also like