Nú stöndum við frammi fyrir því að geta ekki haldið aðventugleðina eins og við vonuðumst til vegna samkomutakmarkanna og viljum við ekki að okkar félagsmenn taki sénsinn á smiti rétt fyrir okkar stærstu vertíð.
Gleðin átti að fara fram hjá Bpró ásamt hinum ýmsu uppákomum sem við ætlum að geyma í pokahorninu og nýta síðar þegar veiran heldur sig hægar.
Í sárabætur fyrir félagsmenn FÍSF ætlar Bpró að bjóða félagsmönnum að versla jólagjafir í húsakynnum sínum. Þau bjóða okkur að versla hár og húðvörur á góðum kjörum, tilvalið að nýta fyrir sig og í jólagjafir.
Við félagsmenn erum velkomnar á mið – föst í næstu viku 25.-27. nóvember á opnunartíma þeirra sem er kl. 9-16 og föstudögum kl. 9-15.30.
Bpró er með vefsíðu og fyrir þær sem ekki komast vegna vinnu eða búa út á landi er hægt að senda á hildur@bpro.is.
Okkur þykir þetta miður því við vorum farnar að hlakka svo til að sjá ykkur og gleðjast saman.
Eingöngu er tekið á móti félagsmönnum sem skrá sig og mun Bpró fá þann lista til að fylgja eftir. Félagsmenn þurfa að skrá sig hér: https://www.si.is/upplysingar-og-utgafa/a-dofinni/skraning/nanar/1834
Með góðri kveðju,
Stjórn FÍSF