354
Kæru félagsmenn,
Mjög áhugaverður fræðslufundur FÍSF fer fram miðvikudaginn 11. janúar 2017 kl. 19:30 að Borgartúni 35, 1. hæð.
Í hvað fara félagsgjöldin okkar?
- Fulltrúar frá Samtökum atvinnulífsins (SA) og Félagi iðn- og tæknigreina (FIT) fjalla um nýja kjarasamninga.
- Viðskiptastjóri FÍSF hjá Samtökum iðnaðarins (SI) kynnir fyrir okkur þá þjónustu sem samtökin veita félögum.
- Umræður og önnur mál.
Mætum vel, nýtum tækifærið og fáum svör við því hvernig við getum nýtt okkur þessi öflugu samtök sem við erum aðilar að.
Fundurinn verður í Kviku, fundarsal á fyrstu hæð í Húsi atvinnulífsins að Borgartúni 35.
Húsið opnar klukkan 19:00 og mun fundurinn hefjast klukkan 19:30.
Kær kveðja,
Stjórn Félags íslenskra snyrtifræðinga