391
Haustfundur FÍSF verður haldinn miðvikudaginn 12. október 2016 í húsnæði Fjölbrautaskólans í Breiðholti, í Mánasal á 2. hæð.
Dagskrá:
19.30 Fundargerð frá síðasta aðalfundi
19.45 Samantekt frá CIDESCO heimsþinginu
20.15 Belmacil aughára/brúnalitur og Lash lift
Kristín Bergmann eigandi Kosmetik snyrtistofu og heildsölu kemur til okkar. Kristín mun fræða okkur um Lash lift augnhárapermanent og kynna fyrir okkur Belmacil augnháralitinn.
21.15 Önnur mál
Með von um góða þátttöku og fræðandi kvöldstund
Kær kveðja,
Stjórn Félags íslenskra snyrtifræðinga