Reykjavík, 4. apríl 2022.
Aðalfundur FÍSF verður haldinn miðvikudaginn, 20. apríl kl. 19:00 í húsnæði Samtaka iðnaðarins, Borgartúni 35, fyrstu hæð.
Að loknum aðalfundi höldum við svo vorhátíð FÍSF á sama stað þar sem léttar veitingar verða í boði og fáum til okkar gest til að halda uppi gleðinni með okkur.
Við hvetjum ykkur til að taka með ykkur gesti, snyrtifræðinga, á hátíðina sem ættu erindi í félagið-því
fleiri sem við erum, því sterkari stöndum við.
Gestir greiða 3.900.- fyrir veitingar.
Vinsamlegast skráið ykkur og gesti HÉR fyrir 13.apríl
Dagskrá aðalfundar:
- a) Ársskýrsla formanns
b) Rekstrarskil gjaldkera
c) Skýrslur nefnda
d) Kjör stjórnar og reikningsskoðunarmanna
e) Kjör í nefndir
f) Önnur mál
Ekki má gleyma við endum á vorgleði.
Þrjú pláss eru að losna í stjórninni og viljum við hvetja ykkur til að gefa kost á ykkur í stjórn. Við hittumst mánaðarlega á zoom og ræðum flest öll þau mál sem koma snyrtifræðingum við og vinnum náið með Samtökum iðnaðarins og þeirra starfsmönnum að baráttumálum okkar.
Kær kveðja,
Stjórn Félags íslenskra snyrtifræðinga