Deprecated: Required parameter $width follows optional parameter $attach_id in /var/www/vhosts/fisf.is/httpdocs/wp-content/plugins/tiled-gallery-carousel-without-jetpack/tiled-gallery.php on line 138
Deprecated: Required parameter $height follows optional parameter $attach_id in /var/www/vhosts/fisf.is/httpdocs/wp-content/plugins/tiled-gallery-carousel-without-jetpack/tiled-gallery.php on line 138 MAGNETIC ÖRNÁMSKEIÐ – Félag íslenskra snyrtifræðinga
Þann 23. Maí 2023 bauð Magnetic naglaskólinn í Hafnarfirði FÍSF í heimsókn til sín. Tekið var virkilega vel á móti okkur, léttar veitingar og gjafapokar. Vöruúrval magnetic var kynnt, fræddumst um mun á hinum ýmsu gelum og gellökkum og hvernig er hægt að tvinna þetta saman. Farið var yfir allt frá þjölum yfir í bora og allt þar á milli. Einnig fengum við að sjá gellökkun og lagfæringu á skemmdri nögl. Félagsmönnum gafst tækifæri á að versla vörur frá Magnetic á afslætti i lok fræðslunnar. Það var fámennt en góðmennt og virkilega fræðandi örnámskeið og góð upprifjun.Maður lærir alltaf eitthvað nýtt og hittir skemmtilegt og faglegt fólk.
Við minnum á að nota myllumerkið #Faglegoglögleg á samskiptamiðlum. Saman erum við sterkari og sýnilegri!